laugardagur, 29. janúar 2011

gengið milli grafreita...og minnisvarða og slíkra staða!

Eitt sinn bar víst þáttur einn á Rás 2 nafnið "Gengið milli grafa" þar sem dagskrárgerðamaðurinn fjallaði um látna tónlistarmenn. Var víst um auðugt dagskráefni að vinna úr þar. Alltaf verið hrifinn af þessum titli á múzikheimildarþætti. Egill Helga í Silfrinu og Kiljunni gengur einnig milli grafa ásamt Guðjóni Friðrikssyni en þá milli grafa stórskálda og rithöfunda. Þó gera megi ráð fyrir að a.m.k helmingur þeirra múzikanta sem muni bregða fyrir hér eru 6 fet niðri þá verður ekki eingöngu gengið milli látina eða hálf lifandi tónlistarmannna heldur ætlaði ég mér einnig að fjalla aðallega um hljómplötufyrirtækin og tónlistarstaðina og nokkur Legendery stúdíó e.t.v. líka. Einnig langar mér að kíkja í plötusöfn og dusta væntanlega þó nokkuð af ryki nú þennan síðari hluta vetrar. Annars er stóramálið tiltölulega ný sett upp prójekt Slagarahornid, sem allir ættu að athuga . Það er stýrt af nokkrum heiðursmönnum sem allir eiga það sameiginlegt að vera með múzikbakteríu sem er ólæknandi.   Þar sem mér  langaði að reisa gamla bloggsíðu mína á nýjan leik við í samt kannski töluvert minni umbúðum og styttri málalengingum. Reyna vera stuttorður sem er mottó ársins 2011. Stutt en hnitmiðað. Góðar stundir


 virðingarfyllst...
   Stefán Jónsson